28.2.2009 | 22:15
Af hverju ekki auglýsing með zero MIS ?
Bónusauglýsing í Fréttblaðinu:
Alltaf klassi að skrifa orðið vitlaust þegar þú ert með það svona beint fyrir framan þig ...
b
Spaugilegt | Breytt s.d. kl. 22:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.2.2009 | 22:55
Veðurstofuvegsmis?
Heitir gatan spurningarmerki?
Ég sé strax fyrir mér samtal:
A: Er þetta nálægt Veðurstofuvegi??
B: Já þú ferð framhjá Öskjuhlíðinni!, í áttina að Veðurstofuvegi? og endar svo upp í Efstaleiti# og þar finnur þú Neðstaleiti$.
B
24.2.2009 | 23:29
MIS-coverup
MIS-bloggið er búið að uppgötva samsæri til að breiða yfir MIS. Á kortavef ja.is, sé hann stilltur á loftmynd, lítur Smáralindin svona út:
En heppilegt að byggingin skuli skiptast svona í tvennt á milli tveggja myndatakna þ.a. MIS lögun byggingarinnar sést ekki greinilega...
b
23.2.2009 | 23:34
Ekki-MIS
Dr. Gunni á það til að birta stöku ekki-okur á okurblogginu, svo hví ekki að koma af og til með hluti sem virka svo sýrðir að hægt er að hlæja að þeim þótt þeir séu ekki MIS. Hér er eitt svoleiðis:
Kannski er ég bara svona mikið borgarbarn, en mér fannst flotbryggja afskaplega fyndinn hlutur til að sjá auglýstan í smáauglýsingum á Netinu. Þar sem ekki er um að ræða MIS er auglýsingin látin flakka með símanúmeri og án mis.blog.is slóðarinnar í horninu.
b
21.2.2009 | 23:18
TungumálaMIS
Nenni ekki að taka mynd af þessu þar sem það er hvort eð er um að ræða frétt um MIS, ekki MIS í fréttinni sem búast má við að verði leiðrétt síðar:
MBL: Frétt af pólskum umferðarníðing
Vel MIS-að hjá írsku löggunni.
b
19.2.2009 | 22:32
SmáauglýsingaMIS
Þá er komið að nýjum smáauglýsingaskammti.
Brettaúlpa .. 15 þúsund ný, en ef hún er sem ný þá kostar hún 59 þúsund .. þætti gaman að vita hvers sviti er svo dýrmætur að hann fjórfaldar verðmæti úlpunnar..
Skrifborðsstóll með sölu .. þarna er mynd, en bíddu rólegur .. ekki bara er þetta ekki mynd af stólnum sjálfum, heldur allt öðruvísi stól .. hver er þá tilgangurinn með myndinni ?
Mjög mikilvægt að hægt sé að skipta um bekk í fjarstýrða bílnum .. svona þegar allir farþegarnir eru búnir að slíta áklæðinu um of!
b
18.2.2009 | 23:24
Visir.MIS
Klaufalega orðuð fyrirsögn:
Ég var allavega alveg að sjá fyrir mér hóp af gleðikonum að mótmæla því að ein þeirra hafi verið handtekin eða eitthvað.
b
17.2.2009 | 22:37
StjörnustríðsMIS
Hagkaup að auglýsa öskudagsbúninga .. í hvaða helli ætli ljósmyndarinn og auglýsingahönnuðurinn hafi verið að chilla saman undanfarin ár?
Ótrúlega klaufalegt.. Ætli þeir bjóði líka upp á bleikar Bart Simpson grímur?
b
15.2.2009 | 18:31
TímaskekkjuMIS
Frétt úr slúðurhorninu á mbl.is:
Sex mánuðum eftir sex mánaða hjónaband, já .. Voru þau þá gift skv. lögum í ár, en ekki búin að búa saman síðasta hálfa árið ? Það má lesa það út úr þessari setningu, en dagsetningin sem fylgir á eftir sýnir svo ekki sé um villst að hér er um að ræða fljótfærnisMIS hjá blaðamanni.
b
13.2.2009 | 21:23
KreppugrínMIS
Stundum er auðvelt að sjá í gegnum fingur sér með innsláttarvillur, sérstaklega þegar amatörar eru að blogga eða búa til smáauglýsingar. En þegar menn eru að eyða lengri tíma í Photoshop, þá verða áberandi villur mjög vandræðalegar. Einhverjir grínistar eru að shoppa íslenska stjórnmálaleiðtoga inn á þekkt kvikmyndaplaköt til að létta mönnum lundina í kreppunni. Oftast fyndið, en menn verða að vanda sig:
Hvað er eitt N milli vina, sérstaklega þegar það er bætt upp með auka C á næstu mynd:
Pínu klaufalegt að senda frá sér svona ljótar villur þegar svona vel hefur verið vandað til verks.
b